Ađalvalmynd

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Annasöm helgi

23. október 2007 klukkan 15:17

Jæja þá er aldeilis annasöm helgi að baki.

Á föstudaginn var ég í Hvassaleitinu að hjálpa til í sviðaveislu hjá gamla fólkinu. Það var mikið stuð þar eins og venjlega, þetta gamla fólk eru svoooo mikil krútt þegar þau eru að "djamma" alveg að fíla sig í sveiflunni. Það var líka mikið stuð hjá okkur vinnumaurunum í eldhúsinu... vorum næstum því jafn hressar og gamla fólkið Glottandi

Á laugardaginn var svo árshátið klúbbsins og Assa, og þema dagsis að þessu sinni var Gay for a day. Hægt er fyrir áhugasama að skoða myndir frá deginum hérna www.klubbur.betra.is  Við hittumst við Q bar og fórum svo að versla á laugarveginum. Löbbuðum svo í Listasafnið og kíktum á gjörninginn hans Curvers. Þar fórum við í keppni hver gæti gert bestu kaupin fyrir 100 kall, og Hófí vann það... en ég fékk nú samt Modonnu og Xanadu á vínil og var bara mjög sátt við mitt. Já og svo fékk ég líka '98 Karokí dísk þar sem meðal annars má finna Horny í karókí útgáfu. Ég held samt að Curver sjálfum hafi fundist Elva gera bestu kaupin með Revolting cocks disknum!! Sem eins og nafnið gefur til kynna er alveg frábær diskur Svalur Að því loknu fórum við í kaffi í perluna... þar sem var nú verslað aðeins meira á tónlistarmarkaðnum!   Svo lá leiðin í Latabæ þar sem Lena sýndi okkur allt sem þar er að sjá sem er nú ansi mikið skal ég segja ykkur!! Og þar lágum við í dekri og komumst að því að ég er mest gay af okkur öllum!!!!! surprise surprise
Svo borðuðum við á Tapas og fórum í partý til Theó sætu þar sem tjúttað var frameftir öllu.

Svo á sunnudaginn var afmæli hjá Margréti Maríu prinsessu í kökur og kræsingar mmmmm mjög huggulegt.

ég mæli með klúbbsíðunni hér að ofan ef þið viljið sjá fyndnar myndir og hlæja smá þvílíkir krakkar þarna!!

En svo er Edinborg næstu helgi, meira um það síðar.

Svíţjóđ... híhí

04. október 2007 klukkan 09:23
Tók e-ð svona próf og ég er með sænskan perónuleika... heija sverige Brosandi



You're Sweden!

After years of trying to rule the world around you, you've
finally put aside violence in favor of advocating peaceful resolution.  There's
still a little Viking in you, but mostly you like Nobel Prize winners and long
nights by the fire.  And safe cars.  You always read the safety manual
in airplanes, and you're just a little cold.



Take the Country">http://bluepyramid.org/ia/cquiz.htm">Country Quiz
at the blue/">http://bluepyramid.org">Blue Pyramid


róleg tíđin

24. september 2007 klukkan 14:22

Jæja þá er rólegheitarhelgi að baki.
Við gerðum bara mest lítið, laugardagurinn fór í rólegheit bara. Við byrjuðum með Guðrúnu Pálínu í Litla Íþróttarskólanum... öll fyrirmæli sem kennarinn gaf henni fóru nú svolítið fyrir ofan garð og neðan en þetta kemur pottþétt. Við skemmtum okkur allavegana mjög vel. Svo lagðist ég í sófann hjá múttu og við horfðum á Because I said so, sem er by the way æðisleg.
Svo var bara vinna í gær.
Aðlögun er að koma hjá Guðrúnu á leikskólanum, gengur hægt en mjakast... svo er hún farin að taka upp á því að vilja ekki sofa á nóttunni þannig að foreldrarnir eru gjörsamlega vansvefta.... Hissa en það lagast vonandi.

Ég er svo bara farin að hlakka til að komast til Edinborgar ohhh það verður æði að komast út, og vonandi að maður geti slappað af þrátt fyrir að þetta barnapíustúss hafi ætlað að koma í veg fyrir ferðalagið....

Jćja já

14. september 2007 klukkan 10:40

Jæja góðir hálsar góðan daginn :) það er ekkert aðeins langt síðan ég  bloggaði. Kannski spurning um að maður fari að endurvekja þetta blogg. Er nu´bara svona mest að athuga hvort ég kunni þetta ennþá... hmmmmm

Þetta er búið að vera bara hið fínasta sumar, gæsun og brúkaup og svo gæsuðum við Elvu og hú gifti sig :):)
Svo fórum við í tjald og búin að vera að gera alveg fullt.

ég er byrjuð að vinna hjá Flugfélagi Íslands, mjög fínt, ákvað að salta aðeins kennsluna í bili.

Setti nöfnin okkar systkinanna og Albert og Sólveigar í Led Zeppelin pottinn... verður spennandi að sjá 1. okt hvort við fáum miða... en að vera einn af 20 milljónum i pottinum er soldið sona sona en maður verður að reyna ;)

En jæja farin að vinna heyrumst fljótt aftur... ég lofa ;)

myndir af sæta fólkinu í sumar



Gleđilegt ár

02. janúar 2007 klukkan 16:44

Jæja góðir hálsar, þá er nýja árið gengið í garð með öllu því sem að tilheyrir. Spennandi ár framundan og ég hlakka mikið til :) nú þarf maður kannski að fara að vinna með vorinu, snúlla að fara á leikskóla og allt á fullu bara. Svo eru tvö kríli á leiðinni hjá Klúbbnum og Assa, þannig þetta er allt saman mjög spennandi eins og þið heyrið.


Hvernig fannst ykkur annars skaupið?  mér finnst voða margir blogga um hvað það hafi verið leiðinlegt en mér persónulega fannst það algjör snilld...margir tala um að það hefði átt að taka Silvíu Nótt fyrir en var ekki bara fínt að gefa henni frí hefði ekki verið gott nema Ágústa Eva hefði leikið hana sjálf. Frábært að sjá alla þessa leikara af yngri kynslóðinni í flestum hlutverkum en ekki gölmu refina í spaugstofunni í þeim öllum. Þannig það er alveg two thumbs up :) algjörlega frábært, og auðvitað spillti upphitun Cleese ekki fyrir.... ;)

Smá dúllumynd til að kveðja :)

Gleđileg og jól og gott komandi ár :)

30. desember 2006 klukkan 17:31
Jæja þá er maður laus við gipsið fyrir löngu þannig það er engin afsökun fyrir því lengur að blogga ekki þar sem báðar hendur eru fríar :)
Við erum búin að hafa það svakalega gott um jólin, eiginlega allt of gott kannski, þannig sem þetta á að vera. Guðrún var ekki alveg að fatta pakkaflóðið handa henni, hún var eiginlega mest sátt bara ef hún hafði nóg krulluband bara að leika sér með. Hún var að sjálfsögðu mjög ánægð með allt það sem datt úr pökkunum hennar :)

Ég get nú ekki orða bundist yfir aftökunni á Saddam í nótt. Hann var örugglega einn sá ógeðfelldasti persónuleiki sem lifað hefur, (held nú samt að Bush komist ansi nálægt honum) en að núna árið 2006 næstum því 2007 sé maður leiddur fyrir böðla með grímur og hengdur er alveg ótrúlegt. Það er eins og heimurinn hafi skellt sér aftur í miðaldir í smá stund til að leysa þetta Saddam mál. Hefði ekki verið betra að láta hann rotna í fangelsi e-s staðar frekar.... það er mín skoðun allavegana. Finnst þessi leið alveg stórskrýtin....

en að skemmtilegri hlutum hvað á að gera um áramótin?? Við ætlum að vera hérna og ma og pa ætla að vera hjá okkur. Svo býst ég við að ég sprengi nokkrar vel valdar sprengjur á meðan Albert og Guðrún horfa á mig í gegnum gluggann... hehe Allavegana hafið það gott hvar sem þið verðið og Gleðilegt ár :)

lalalalala

28. september 2006 klukkan 04:16

Jæja er ekki kominn tími á smá blogg?  Ég á við e-a svakalega bloggleti að stríða núna. Held að þetta sé meira áhugaleysi en tímaleysi en ég lofa að fara að hressa þetta við. Það er lítið að frétta af okkur litlu familíunni, við fórum eina helgi í Húsafell sem var æðislegt! Svo fór ég með stelpunum mínum í bíó að sjá step up! hún er algjört æði... mæli með henni við alla sem finnst gaman að sjá flota kroppa hrista sig soldið Glottandi 

Ég er byrjuð að vinna smá, fínt að komast í smá rútínu, og æði að hafa fundið svona dúllerí vinnur (jamm þær eru tvær) þannig að ég geti verið heima í vetur hjá snúllunni okkar, held að það sé alveg þess virði að geta verið með henni og fylgst með ölu því mikla sem er að gerast þar sem er ekkert lítið þessa dagana get ég sagt ykkur.

Kveð ykkur í bili með rokkaramyndinni Svalur

hugsađu ţiđ tvisvar um áđur en ţú ferđ í umferđina

20. september 2006 klukkan 16:09

Ég las þetta hjá Huldu, ég set aldrei neitt svona keðjudæmi eða bréf hérna inn, en þetta er eiginlega of svakaleg lesning til að sleppa því.....

Við erum ekki ódauðleg..
Ég mun aldrei gleyma því, hversu svalur mér fannst þú vera, þegar þú
þeyttist eftir Reykjanesbrautinni á 160.kílómetra hraða á klst, á nýja
bílnum þínum, sem þú fékkst daginn áður, ásamt ökuskírteininu. Það var
eins og brautin hefði verið sérsniðin fyrir þig. Það breytti engu þótt
myrkrið væri skollið á og brautin rennisleip, eftir rigningu dagsins.
Þú varst Sjúmakker Íslands og við fylgdumst með þér af aðdáun og áttum
ekki orð yfir það, hversu fimur okkur fannst þú vera á bak við stýrið.
Ég sem er vanur að nota öryggisbelti, lét ég bara hanga niður með
sætinu. Mér fannst algjör óþarfi að spenna það á mig, því mér fannst ég
svo öruggur með þér í bíl. Það átti við um okkur öll, sem vorum með þér
í bílnum. Ljósastaurarnir þeyttumst framhjá og manni fannst eins og það
væri bara einn langur ljósastaur á Reykjanesbrautinni, því þú ókst svo
hratt. Ég man að stelpurnar skríktu af gleði, því þeim fannst þú svo
svalur og ég fann það á mér, að þær ætluðu allar að “negla” þig í lok
ferðar. Ég horfði á þig öfundsjúkur, því þú bjóst við svo mikla
kvennhylli. Djöfull get ég ekki beðið eftir því að fá bílprófið, því þá
skulu þær allar verða mínar.



Ég mun aldrei gleyma því þegar ég sá þig í dauðateygjunum, eftir að þú
þeyttist út úr bílnum, eftir að hafa keyrt á bílinn, sem kom úr
gagnstæðri átt. Eitt lítið augnablik misstir þú stjórn á bílnum og nýji
bíllinn ónýtur og Reykjanesbrautin blóði drifin. Ég mun heldur aldrei
gleyma stelpunni, sem sat frammí með þér. Fallega brúnhærða stelpan,
sem skríkti og hló svo dátt, mun aldrei hlægja aftur. Þarna lá hún út
um allt í bílnum. Hún var eins og kramin fluga, sem var búið að slíta
af vængi og fætur. Ég mun aldrei gleyma stelpunum, sem sátu aftur í með
mér. Þær lifðu af, en munu aldrei lifa aftur eðlilegu lífi, nema
eðlilegt líf sé að liggja á sjúkrastofnun, það sem eftir er og vera
grænmetishausar. Ég mun aldrei gleyma gömlu hjónunum, sem voru í
bílnum, sem þú keyrðir á. Þau hefðu auðveldlega geta átt 10 - 15 góð ár
í viðbót. Ég mun aldrei gleyma því, hvernig mér leið þarna aftur í. Ég
gat mig hvergi hreyft og get það ekki ennþá, því ég er fastur í
hjólastól og er algjörlega háður öðrum, því ég get hvorki fætt mig né
klætt. Nú mun ég aldrei fá bílprófið, sem ég þráði svo heitt.... né
kvennhyllina.

Ef þú heldur að þetta sé allt, þá er ég bara rétt að byrja. Hvað með
móður þína og föður, sem elskuðu þig svo heitt? Hvað með systkini þín,
sem dáðu þig og horfðu upp til þín? Hvað með ömmu þína og afa, sem voru
svo stolt af barnabarninu sínu? Hvað með alla vini þína, sem gátu varla
verið án þín? Ertu tilbúinn að steypa öllu þessu fólki í sorg, sem er
jafnvel óyfirstíganleg? Hvað með ættingja allra hinna, sem þú stefndir
í hættu og myrtir? Hvernig heldur þú að það sé að vera viðstaddur
jarðaför síns eigins barns? Hvernig heldur þú að það sé að koma í
heimsókn á sjúkrahúsið, þar sem barnið þitt liggur, með næringu í æð og
í dái, og á aldrei möguleika aftur á eðlilegu lífi? Hvernig heldur þú
að það sé að þurfa að fæða, klæða og skeina barninu sínu, langt fram á
fullorðinsaldur?

Hefði ekki bara verið betra að keyra á löglegum hraða eða var “kúlið”
alveg að drepa þig? Það gerði það reyndar á endanum.

Höf. Garðar Örn Hinriksson

Gó gó gó

31. ágúst 2006 klukkan 13:51
Jæja eru Íslendingar búnir að sýna mátt sinn og megin?? eruði alveg að grínast með það að Magni hafi verið með flest atkvæði allra.....?? alveg róleg, hvað ætli meðalatkvæðafjöldinn hafi verið á hvern íslending?? pottþétt alveg svakalega mikill, svo hefur hann náttla haldi erlendu atkvæðunum sínum líka. Dullegur strákur Brosandi ótrúlegt samt að okkur takist að láta hann fá flest atkvæði en okkur tekst varla á fá atkvæði í Eurovision Hlæjandi hmmmmm

En ég var einmitt að hugsa um Rockstar INXS sem var alveg snilld líka, yfir heildina voru í rauninni miklu betri söngvarar þar. Og það held ég sýndi sig soldið í þeirri seríu að það er sennilega betra að verða í öðru sæti ef maður vill vera að vinna í sinni tónlist. Marty Casey sem var í öðru sæti í fyrra var bara alveg frábær og ég var og er ennþá að fíla hann í ræmur. Hann fékk þannig samning að hann hitar upp fyrir INXS á túrnum þeirra þannig hann er með þar líka að spila sína tónlist sem hlýtur að vera fínn díll. Mæli með því að þið kíkið á Marty Casey, bæði frammistöðurnar hans frá því í fyrra og annað, eitt lag sem hann samdi í þættinu í fyrra heitir Trees og er algjör snilld.  En nóg um Rokk star þráhyggju Glottandi

Héðan er bara fínt að frétta, Albert einhenti er að verða bara nokkuð góður og er farinn að nota hendina. Byrjaði á skúringunum í gær, þær leggjast bara vel í mig, líka frábær tilfinning að geta svona verið aðeins lengur heima með Guðrúnu Pálínu. Assi er svo með Rómó kvöld um næstu helgi handa okkur stelpunum, það verður huggó, ætlum að horfa á Casablanca og svona.

Jæja over and out

Jćja já

17. ágúst 2006 klukkan 20:11
Hvað er að frétta allir??? Héðan er bara gott sko, allt komið í fastar skorður aftur. Albert einhenti farinn að vinna aftur og við Guðrún Pálína höfum það gaman heima við og á flakkinu!! Brosandi Svo fer ég bráðum að byrja að vinna þetta litla sem ég ætla að vinna og það leggst bara ágætlega í mig!

En ég verð að minnast á eitt... sáuði armbandið sem ofurgellan Brooke Burke var með í gær á hægri hendinni.... ekkert smá flottur íslenskur fáni úr pallíettum á því.... geðveikt maður, flottur stuðningur við Magna sem átti sko ekki skilið að lenda þarna.... má samt alveg fara að búast við þessu þau eru svo fá eftir.

Svo er bara stuðhelgi framundan, Albert og Guðrún eru að koma með mér að hitta c-bekkinn úr MR, og flestalla fylgifiska hans!! Það verður fílingur held ég. Svo er menningarnótt, og við hljótum að geta fundið e-ð að gera þá er það ekki?? Allavegana að sjá Jef who í Landsbankanum Svalur 

Klukkan